ID: 4517
Fæðingarár : 1867
Dánarár : 1955

Nikulás Össurarson Mynd Heimskringla 1955
Nikulás Össurarson fæddist í Barðastrandarsýslu 18. nóvember, 1867. Dáinn í Winnipeg 15. ágúst, 1955.
Maki: Anna Guðmundsdóttir f. 28. nóvember, 1865, d. 1. maí, 1953.
Börn: 1. Þórdís Lovísa f. 16. september, 1896 2. Louis 3. Eddy.
Nikulás flutti vestur til Kanada árið 1887 og settist að í Winnipeg. Þar var hann umsjónarmaður River Park, skemmtigarðs í borginni. Anna flutti vestur þangað 1889. Þau bjuggu í borginni alla tíð.
