Gestur Björnsson

ID: 4612
Fæðingarár : 1860
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1894

Gestur Björnsson: Fæddur í Dalasýslu 14. febrúar árið 1860. Drukknaði í Manitobavatni 30. júní, 1894.

Maki: Jóna Benediktsdóttir f. 26. júlí, 1865 í Hjarðardal í Ísafjarðarsýslu.

Börn: 1. Benedikt 2. Halldóra 3. Björn 4. Gestur Oddfinnur.

Fjölskyldan fór vestur árið 1892 og fór í Argylebyggð. Ílentist ekki lengi þar og flutti loks þaðan norður að Manitobavatni. Þar drukknaði Gestur skömmu síðar og flutti Jóna þá heim til Íslands.  Benedikt og Björn urðu eftir vestra, Björn var tekinn í fóstur og tók föðurnafn fósturforeldra og skrifaði sig Christiansson.