ID: 4680
Fæðingarár : 1852
Fæðingarstaður : Ísafjarðarsýsla
Sigurborg Þorsteinsdóttir fæddist í Ísafjarðarsýslu árið 1852.
Maki: Jósafat Ásgrímsson f. árið 1856 í Skagafjarðarsýslu. Joseph T. Hallson vestra.
Barnlaus. Þau tóku Guðmund Júlíusson, frænda Jósafats, í fóstur eftir komuna til Minnesota.
Þau fluttu vestur til Ameríku árið 1888 og voru móðir Jósafats og Guðmundur Júlíusson þeim samferða. Þau settust að í Duluth í Minnesota en árið 1910 eru Jósafat og Sigurborg skráð til heimilis í Waterman í Kitsap sýslu í Washington.
