
Halldór Halldórsson, Margrét Eyjólfsdóttir og barn. Mynd SÍND
Halldór Halldórsson fæddist 25. janúar, 1849 í Árnessýslu. Dáinn 26. janúar, 1924. Ármann vestra.
Maki: 1877 Margrét Eyjólfsdóttir f. 12. júlí, 1852 í Árnessýslu.
Börn: 1. Halldór Eyjólfur f. 7. apríl, 1884 2. Hannes f. 4. júní, 1886 3. Þorgeir Árni f. 28. desember, 1887 4. Kristinn Pálmi f. 14. apríl, 1889 5. Valgerður Kristín f. 10. desember, 1891.
Halldór og Margrét fluttu vestur árið 1878 til Kanada og fóru í Markland í Nova Scotia. Með þeim var Sesselja Grímsdóttir en þau þrjú voru öll búandi á Stóra Hálsi í Þingvallahreppi. Einar Einarsson frá Hvoli í Dyrhólahreppi var þeim samferða. Halldór og Margrét flutti til Winnipeg árið 1882 og bjuggu þar í tvö ár en settust þá að í Garðarbyggð í N. Dakota.