
Ingunn með syni sínum Edgar, konu hans Myrtle með Ingu litlu í fanginu. Mynd Einkasafn.

Synir Edgars, George og Jim. Mynd Einkasafn
Ingunn Sigurðardóttir fæddist 11. maí, 1886 í Rangárvallasýslu. Snidal vestra. Dáin 24. apríl, 1976 í Bresku Kolumbíu.
Maki: 13. maí, 1911 Guðmundur Sigurðsson f. í N. Þingeyjarsýslu 8. mars, 1873. George Snidal vestra. Dáinn árið 1941.
Börn: 1. David Sigurður Ingibergur f. 1. mars, 1912 2. Georgina Guðbjörg f. 16. júní, 1915 3. Edgar Thomas f. 27. júlí, 1917
Ingunn fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1910 þar sem hún kynntist Guðmundi Sigurðssyni. Hann fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1902, þaðan til Hallson í N. Dakota og svo í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1905. Þar bjó hann til ársins 1911 en þá flutti hann til Winnipeg. Þau bjuggu þar í bæ til ársins 1914 og vann Guðmundur við húsbyggingar. Þaðan fluttu þau vestur til Port Clements á Queen Charlotte Islands árið 1914. Þau settust að í nýrri, íslenskri byggð í Osland árið 1919 þar sem Guðmundur opnaði pósthús og nefndi Árós. Þaðan fóru þau árið 1925 til Prince Rubert þar sem Guðmundur fékk vinnu hjá niðursuðuverksmiðju.
