Jóhann Þorvarðarson

ID: 19139
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1884
Fæðingarstaður : N Dakota

Jóhann Þorvarðarson fæddist í Pembinabyggð í N. Dakota árið 1884. Skráður John Einarson vestra

Maki: Ólína Ingimundardóttir f. árið 1890 í Mountain í N. Dakota.

Börn: 1. Kristín 2. Elenor 3. Sigrún 4. Frímann 5. Albert.

Jóhann ólst upp í foreldrahúsum í Pembina. Foreldrar hans voru Þorvarður Einarsson frá Langanesi og Kristín Gísladóttir. Jóhann og Ólína fluttu í Vallarbyggð í Saskatchewan árið 1914. Ólína var dóttir Ingimundar Jónssonar úr Strandasýslu og Marselíu Halldórsdóttur sem settust að fyrst í Mountain í N. Dakota en seinna í Brownbyggð í Manitoba.