Guðmundur Þorkelsson

ID: 4988
Fæðingarár : 1878
Fæðingarstaður : Ísafjarðarsýsla

Guðmundur Þorkelsson fæddist 10. ágúst, 1878 í Ísafjarðarsýslu. Dáinn 24. ágúst, 1945. Thorkelson vestra.

Maki: 1897 Guðný Anna Stefánsdóttir f. í Nýja Íslandi 7. apríl, 1879, d. á Betel í Gimli 30. ágúst, 1966.

Börn: 1. Jón Ágúst f. 2. ágúst, 1901 2. Þorkell Stefán f. 4. september, 1904, d. 8. september,1957 3. Stefanía Ingibjörg f. 5. apríl, 1903 4. Guðmundur Halldór f. 5. október, 1907 5. Kristín f. 29. mars, 1910 6. Sigurlín f. 15. júlí, 1912 7. Guðrún María f. 16. mars, 1815 8. Björn Þorsteinn f. 3. júlí, 1917 9. Guðmundur Júlíus f. 1. maí, 1919 10. Gladys f. 14. nóvember 1925.

Guðmundur fór vestur til Winnipeg í Manitoba með fósturforeldrum sínum, Stefáni Sigurðssyni og Guðrúnu Ísleifsdóttur árið 1887. Hann fylgdi þeim í Nýja Íslandi til fullorðinsára og nam land í Árnesbyggð í Nýja Íslandi. Guðný var dóttir Stefáns Jónssonar og Kristínar Jóhannesdóttur á Gimli.