Rebekka Stefánsdóttir

ID: 4990
Fæðingarár : 1859
Dánarár : 1954

Rebekka Stefánsdóttir fæddist í Ísafjarðarsýslu 10. ágúst, 1859. Dáin í Manitoba árið 1954.

Maki: 10. september, 1880 Þórður Bjarnason f. árið 1848 í Ísafjarðarsýslu. Dáinn í Nýja Íslandi 9. júlí, 1933.

Börn: 1. Guðrún Sigurfljóð f. 1884 2. Bjarni (Barney) Guðleifur f. 1. apríl, 1888 3. Ragnheiður (Ranka) 4. Stefanía Elín Þóra f. 1899 5. Þórður (Tod) Þorsteinn f. 1902

Fluttu vestur um haf til Winnipeg í Manitoba árið 1887  ásamt foreldrum Rebekku, Stefáni Sigurðssyni og Guðrúnu Ísleifsdóttur. Þau ætluðu norður í Mikley en vegna veikinda Guðrúnar voru þau sett í land í Árnesi í Nýja Íslandi.