Páll Björnsson

ID: 19284
Fæðingarár : 1884
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1953

Að framan: Donald, Fjóla og Páll. Fyrir aftan: Margrét og Cyril. Minni mynd: Fjóla og Páll.  Mynd WtW

Páll Björnsson fæddist í Borgarfirði eystri í N. Múlasýslu 28. janúar, 1884. Dáinn í Lundarbyggð árið 1953. Paul Johnson vestra.

Maki: Fjóla Magnúsdóttir f. 1901 í Lundarbyggð.

Börn: 1. Margrét Guðrún f. 1927 2. Paul Edward f. 1929 3. Donald Kenneth f. 1935 4. Cyril Leon f. 1938.

Páll flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1888 með foreldrum sínum, Birni Jónssyni og Guðrúnu Pálsdóttur sem námu land í Lundarbyggð. Þar ólst Páll upp og þegar aldur leyfði nam hann land með bróður sínum Jóni, reistu á því veglegt hús sem þeir nefndu Hofteig. Þar bjó Páll í ellefu ár en flutti þaðan í þorpið Lundar og opnaði hesthús og seinna rak hann þar flutningafyrirtæki. Fjóla var dóttir Magnúsar Kristjánssonar og Margrétar Daníelsdóttur.