ID: 19033
Fæðingarár : 1884
Fæðingarstaður : Gullbringusýsla
Dánarár : 1953
Magnús Guðmundur Árnason fæddist í Reykjavík 16. júní, 1884. Dáinn 12. september, 1953 í Winnipeg.
Maki: 24. mars, 1914 Guðrún Ragnhildur Bergþórsdóttir (Thordarson) f. í Mikley 16. febrúar, 1891.
Börn: 1. Kristján 2. Stefán 3. Bára 4. Lilja.
Magnús flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1911 og bjó þar fyrstu árin. Þar kynntist hann Guðrúnu og kvæntist henni þar. Foreldrar hennar voru Bergþór Þórðarson frá Ánabrekku í Mýrasýslu og Kristjana Sigurðardóttir frá Hnausa. Magnús og Guðrún fluttu til Riverton árið 1914 þar sem þau bjuggu til ársins 1926 en það ár fluttu þau í Gimli. Þaðan fóru þau til Winnipeg árið 1939.
