ID: 18938
Fæðingarár : 1855
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1909

Gísli Ólafsson Mynd Almanak 1910
Gísli Ólafsson fæddist 1. júní, 1855 í Ljósavatnsskarði í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Winnipeg 8. ágúst, 1909.
Maki: 19. maí, 1890 Elín Sigríður Jónsdóttir f. í Eyjafjarðarsýslu árið 1857, d. í Winnipeg 1934.
Börn: 1. Alpha f. 1895, d. 1970.
Gísli flutti vestur til Winnipeg árið 1886 ásamt foreldrum sínum, Ólafi Ólafssyni og Rannveigu Sveinbjarnardóttur. Gísli vann hjá bændum í N. Dakota, vann í vegavinnu í Keewatin í Ontario en haslaði sér svo völl í Winnipeg. Þar sneri hann sér að verslunarrekstri og vegnaði vel.
