Sesselja Andrésdóttir

ID: 18942
Fæðingarár : 1846
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1918

Heimild í Minnesota segir myndina vera af Sesselju Andrésdóttur og Sigurði Bjarnasyni (?) Setur spurningarmerki við nafn Sigurðar! Mynd WC

Sesselja Andrésdóttir fæddist 5. júní, 1846 í N. Múlasýslu. Dáin í Minnesota 2. janúar, 1918.

Maki: Sigurður Bjarnason f. 1845 í S. Múlasýslu.

Börn: 1. Stefán f. 27. mars, 1878, d. 30. mars, 1878 2. Stefán (Stephan) f. 12. október, 1880 3. Þóra (Thora) f. 18. janúar, 1883.

Þau fluttu vestur til Kanada árið 1880 og settust að í Winnipeg. Fóru þaðan suður til N. Dakota þar sem Sigurður lést en eftir lát hans flutti Sesselja til Minnesota þar sem systir hennar og bróðir bjuggu.