ID: 18915
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1887
Dánarár : 1971
Guðrún Sigurborg Albertsdóttir f. 13. september, 1887 í Minnesota, d. 25. júlí, 1971. Gudrun Sigurborg Johnson vestra.
Maki: Sigþór Sigtryggur Vigfússon f. í Minnesota 18. apríl, 1883, d. í Minneota 19. apríl, 1945. Ole Sigthor Sigtryggur Anderson (O.S.Anderson) vestra.
Börn: 1. Elizabeth Sigríður f. 19. janúar, 1919 2. William Ole f. 23. júní, 1921 3. Douglas Albert f. 31. ágúst, 1929.
Sigþór ólst upp hjá foreldrum sínum, Vigfúsi Andréssyni og Sigríði Jóhannesdóttur í íslensku byggðinni í Minnesota. Hann bjó í Minneota og vann við kornhlöðurnar þar. Guðrún var dóttir Alberts Júlíusar Jónssonar og konu hans, Þórunnar Ágústu Grímsdóttur.
