Jóhannes Magnússon

ID: 1438
Fæðingarár : 1827
Fæðingarstaður : Rangárvallasýsla
Dánarár : 1898

Jóhannes Magnússon fæddist í Rangárvallasýslu árið 1827. Dáinn í Lincolnbyggð í Minnesota árið 1898. John Magnuson vestra.

Maki: Guðný Helgadóttir f. 12. september, 1825 í Rangárvallasýslu, d. 7. janúar, 1911 í Minneota í Minnesota.

Börn: 1. Elín Guðný Jóhannesdóttir f. 1867.

Þau fluttu vestur um haf árið 1871 og fóru til Wisconsin. Þaðan lá leið þeirra út í Washingtoneyju þar sem þau bjuggu næstu árin. Jóhannes fór vestur í Lincolnbyggð í Minnesota og vann þar til hann lést. Guðný og Elín fluttu þangað árið 1899.