Hallbjörg Bergsdóttir

ID: 19332
Fæðingarár : 1882
Fæðingarstaður : A. Skaftafellssýsla
Dánarár : 1981

Hallbjörg Bergsdóttir fæddist 13. apríl, 1882 í A. Skaftafellssýslu. Dáin 1981 í Lyon sýslu í Minnesota. Bertha Holm í Minnesota.

Maki: 1906 Sigurður Snorri Jóhann Þorláksson f. í Eyjafjarðarsýslu 2. september, 1877. Dáinn í Marshall í Minnesota 31. maí, 1960. Johann S Johnson eða Joe Johnson vestra.

Börn: 1. Earl Jon f. 19. janúar, 1907 2. Harold Emil f. 28. ágúst, 1910 3. Ásdís (Daisy) f. 30. mars, 1914 4. Mabel Steinunn f. 6. apríl, 1915 5. Ruby f. 26. júní, 1920 6. Ruth f. 26. júní, 1920 d. 1930.

Sigurður flutti vestur til Minnesota árið 1901 og bjó lengstum í Marshall í Lyon sýslu. Hallbjörg var dóttir Bergs Hallssonar og Sigríðar Jónsdóttur. Hún fór vestur árið 1898 og settist að í Lincoln sýslu.