
Ósk Guðný Pálmadóttir og Skúli Hjörleifsson Mynd IRS
Ósk Guðný Pálmadóttir fæddist 12. febrúar, 1893 í Húnavatnssýslu.
Maki: 2. október, 1916 Skúli Hjörleifsson f. í Nýja Íslandi 14. mars, 1895, d. í Ottawa 3. maí, 1976. Þau skildu.
Börn: 1. Pálmi Sigursteinn f. 29. ágúst, 1917 2. Oscar Skúli f. 1. júlí, 1919 3. Guðrún Evelyn f. 14. júlí, 1922 4. Einar Franklin f. 18. mars, 1929.
Ósk Guðný var fárra mánuða þegar hún flutti vestur með foreldrum sínum, Pálma Lárussyni og Guðrúnu Steinsdóttur árið 1893. Þau fóru til Nýja Íslands, bjuggu á Gimli og Riverton. Skúli ólst upp í Húsavík suður af Gimli í Manitoba. Hann var sonur Magnúsar Hjörleifssonar og Guðnýjar Halldórsdóttur sem fluttu vestur árið 1893. Skúli gekk menntaveginn og lærði bókhald. Vann við það alla tíð. Ósk flutti frá Riverton árið 1939 og settist að í Winnipeg. Bjó þar hjá rosknum föður sínum og bróður sínum, Hjálmari Valdimar Lárussyni sem seinna kenndi við Íslenskudeild Manitobaháskóla í Winnipeg.
