Hildur J Sigfúsdóttir

ID: 18864
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1882
Dánarár : 1914

Hildur Jónína Sigfúsdóttir fæddist árið 1882 í Winnipeg. Dáin árið 1914 í Arborg.

Maki: Jón James Eiríksson f. 26. september, 1881 í Minneota í Minnesota, d. í Arborg árið 1942. Jon James Johnson vestra.

Börn: 1. Stefán f. 24. júlí, 1910 2. Sigrún Jóhanna f. 20. júlí, 1912.

Hildur Jónína var dóttir Sigfúsar Jónssonar og Guðrúnar Hildibrandsdóttur sem vestur fluttu til Manitoba árið 1876. Hún bjó hjá þeim í Nýja Íslandi. Jón ólst upp hjá foreldrum sínum Eiríki Jónssyni og Vilborgu Stefánsdóttur í Minneota í Minnesota. Þaðan lá svo leið fjölskyldunnar til Duluth og seinna í Akrabyggð í N. Dakota en 1901 flutti fjölskyldan til Kanada og nam land nærri Arborg í Manitoba. Þar gerðist Jón bóndi og bjó þar síðan.