Stefía Stefánsdóttir

ID: 18904
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1880
Dánarár : 1978

Stefía Sigríður Stefánsdóttir fæddist í Minnesota 15. apríl, 1880. Dáin í Vatnabyggð árið 1978.

Maki: 1903 Jón Björnsson f. á Gimli í Nýja Íslandi 19. júní, 1878, d. í Saskatchewan 12. júlí, 1945. Jon B. Jonsson vestra.

Börn: Áttu ekki börn en ólu upp stúlku, Pálínu Johnson f. 19. júní, 1908 sem var dóttir Kristjáns Jónssonar, bróður Jóns og dreng sem Hallgrímur hét.

Stefía var dóttir Stefáns Guðna Sigurðssonar og Sigríðar Jóakimsdóttur, landnema í Minnesota. Jón var sonur Björns Jónssonar og Þorbjargar Björnsdóttur sem fluttu vestur til Kanada árið 1876. Þau settust að í Nýja Íslandi.  Jón og Stefía fluttu í Argylebyggð frá Minnesota árið 1903 og þaðan í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1907. Þau námu land í Kandahar/Dafoe byggð.