ID: 19141
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1886
Fæðingarstaður : Duluth
Dánarár : 1962
Baldur Jóhannsson fæddist í Duluth í Minnesota 10. mars, 1886. Dáinn í Seattle 4. janúar, 1962. Baldur J. Einarsson vestra.
Maki: 1915 Henriette Valentina.
Barnlaus.
Baldur var sonur hjónanna Jóhanns Einarssonar og Elínar Benonísdóttur sem vestur fluttu árið 1883 og settust að í Duluth ári síðar. Þar gekk Baldur í barna- og unglingaskóla og lauk miðskólanámi þar í borg. Stundaði nám í landbúnaði við University of Minnesota í St. Paul. Hann flutti vestur til Washington, keypti land nærri Seattle og rak þar mjólkurbú árin 1912-1961.