Valgerður Jónsdóttir

ID: 1521
Fæðingarár : 1843
Dánarár : 1912

Valgerður Jónsdóttir Mynd VÍÆ II

 Valgerður Jónsdóttir fæddist 28. júní, 1843 í V. Skaftafellssýslu. Dáin 10. maí, 1912 í Victoria í Bresku Kolumbíu.

Maki: Sigurður Sigurðsson f. í V. Skaftafellssýslu 15. nóvember, 1844, d. 24. júní, 1926 á Point Roberts. Mýrdal vestra.

Börn: 1. Sigurður f. 22. ágúst, 1871, d. 30. apríl, 1878 í Nýja Íslandi 2. Árni f. 19. október, 1872, d. 25.mars, 1966 á Point Roberts 3. Anna f. 21. janúar, 1874 d. 23. desember,1876 í Nýja Íslandi 4. Valgerður f. 10 mars, 1875, d. 9. apríl, 1878 í N. Íslandi 5. Anna f. 23. júlí, 1877, d. 1897 í Victoria 6. Sigurjón f. 24. maí, 1879 í Mikley 7. Valgerður f. 5. apríl, 1882 í Pembinabyggð 8. Margrét f. 10. apríl, 1887.

Sigurður og Valgerður fluttu vestur árið 1876 til Winnipeg í Manitoba og þaðan rakleitt til Nýja Íslands.  Þar bjuggu þau til ársins 1880 en þá fluttu þau suður til Pambina í N. Dakota. Þau fóru þaðan vestur til Victoria í Bresku Kólumbíu árið 1887 og bjuggu þar um hríð en fluttu svo þaðan árið 1894 á Point Robert skagann í Washingtonríki. Voru þar einhver ár en sneru aftur til Victoria. Sigurður flutti svo árið 1914 á Point Roberts skagann og bjó þar til æviloka.