Guðni Jóhannesson

ID: 19153
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1890
Fæðingarstaður : Winnipeg
Dánarár : 1968

Aftari röð: Violet, Guðni, Elísabet, Doris. Bræðurnir Robert og Bertel fyrir framan. Mynd RbQ

Guðni Jóhannesson fæddist í Winnipeg 4. júlí, 1890. Dáinn í Vatnabyggð í Saskatchewan 10. nóvember, 1968. Ginn Gillis vestra.

Maki: 14. júlí, 1920 Elísabet Geirmundsdóttir f. í Garðar í N. Dakota 9. apríl, 1898. Elizabeth Olgeirson vestra.

Börn:  Bertel Lincoln f. 1921 2. Guðrún Violet f. 1922 3. Lillian Doris f. 1924 4. Tvíburar f. 1931, d. í fæðingu 5. Robert Gene f. 1934.

Guðni var sonur Jóhannesar Gíslasonar og Valgerðar Stefánsdóttur sem vestur fóru til Winnipeg árið 1887. Þaðan til Duluth 1892 og svo Garðar í N. Dakota árið 1902. Elísabet var dóttir Geirmundar Bjarnasonar og Guðrúnar Ásmundsdóttur en foreldrar Geirmundar, Bjarni Olgeirsson og Guðrún Ásmundsdóttir settust að í Eyfordbyggð í N. Dakota árið 1879. Guðni og Elisabet fluttu í Vatnabyggð árið 1925.