Kristinn Gunnarsson

ID: 19166
Fæðingarár : 1858
Fæðingarstaður : Borgarfjarðarsýsla
Dánarár : 1949

Kristinn Gunnarsson fæddist 17. júlí, 1858 í Borgarfjarðarsýslu. Dáinn 18. maí, 1949 í Duluth í Minnesota.

Maki: Margrét Guðmumundsdóttir fæddist í Dalasýslu 9. febrúar, 1859, d. 19. ágúst, 1916 í Duluth.

Börn: 1. Kristín f. 1887, d. 1918 2. Hjálmar f. 1889 3. Björn (Byron) Guðbrandur f. 13. júlí, 1891 4. Leon Einar f. 17. ágúst, 1893.

Þau fluttu vestur til Ameríku árið 1887 og settust að í Duluth fyrir 1881 því manntal í Minnesota árið 1895 segir þau hafa verið búsett í borginni í sex ár. Fljótlega opnaði Kristinn mjólkurbú og er titlaður kaupmaður í Duluth í manntali árið 1910. Skráður Chris Gunderson. Árið 1930 býr hann hjá Birni, syni sínum.