Halldór Sigurðsson

ID: 19350
Fæðingarár : 1874
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla

Halldór Sigurðsson fæddist í Skagafjarðarsýslu 14. júlí, 1874. Halldór Ásgrímsson vestra.

Maki: Þórunn Jónsdóttir fæddist 26. september, 1875 í S. Múlasýslu. Austmann vestra.

Börn: 1. Blanche Engilráð f. 25. desember, 1896 2. Norm Halldór f. 5. ágúst, 1898 3. Ruby Dóra f. 3. desember, 1901 4. Alfreð f. 22. nóvember, 1902

Halldór var sonur Sigurðar Stefánssonar og Guðbjargar Pétursdóttur í Skagafirði. Hann var ættleiddur af föðursystur sinni, Engilráð Stefánsdóttur og manni hennar Halli Ásgrímssyni. Þau fluttu vestur árið 1883 og tóku Halldór með sér. Þegar vestur kom tók hann föðurnafn stjúpföður síns. Þau settust að nærri Mountain í N. Dakota. Halldór og Þórunn voru í Minnesota fyrir aldamótin en bjuggu svo í Cavalier sýslu í N. Dakota.