ID: 5091
Fæðingarár : 1839
Fæðingarstaður : Snæfellsnessýsla
Dánarár : 1912
Ragnhildur Soffía Jósepsdóttir fæddist 20. október, 1839 í Snæfellsnessýslu. Dáin 28. apríl, 1912 í N. Dakota.
Maki: Jón Jónsson fæddist í Strandasýslu 3. ágúst, 1844. Dáinn í N. Dakota 26. mars, 1924.
Börn: 1. Guðrún f. 1870 2. Jónas f. 1872 3. Jósef f. 28. október, 1879 4. Elín f. 9. júlí, 1874
Jón og Ragnhildur fóru vestur með Guðrúnu og Jónas árið 1876 og komu til Winnipeg í Manitoba 8. ágúst. Þaðan fóru þau í Nýja Ísland og bjuggu þar til ársins 1880. Þau fluttu til N. Dakota árið 1881 og námu land í Thingvallabyggð.
