Ingimundur Jónsson

ID: 5110
Fæðingarár : 1860
Fæðingarstaður : Strandasýsla
Dánarár : 1940

Ingimundur og Jón Bjarni standa. Marselía heldur á Sigfríði og Ólína Vigdís Mynd SÁG

Ingimundur Jónsson fæddist 20. desember, 1860 í Strandasýslu. Dáinn í Manitoba 22. nóvember, 1940. Johnson vestra.

Maki: 1889 Marsilía Halldórsdóttir f. 1870 í Barðastrandrsýslu d. 26. janúar, 1917.

Börn: 1. Ólína (Olena) Vigdís f. í Mountain 1890 2. Jón Bjarni (J.B.) f. 7. ágúst, 1892 í Winnipeg 3. Sigfríður (Freda) 4. Kristjana 5. Halldór (Dori) 6. Vilhjálmur (William, Bill) 7. Herbert 8. Herdís Sigurbjörg (Daisy) 9. Arnía Sigríður (Minnie) 10. Guðbjörg (Bertie)

Ingimundur fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1885 og þaðan áfram til Mountain í N. Dakota. Marsilía fór vestur þangað árið 1888 en Jósteinn bróðir hennar settist þar að árið 1885. Hann og Ingimundur fóru vestur sama ár með sama skipi. Ingimundur flutti til Winnipeg frá N. Dakota árið 1890 og þaðan í Grunnavatnsbyggð árið 1894. Þau bjuggu þar til haustsins 1907 en þá fluttu þau suður í Brownbyggð. Þar keyptu þau land og seinna annað nærliggjandi. Ingimundur sótti Ísland heim árið 1930.