Una Stefánsdóttir

ID: 5154
Fæðingarár : 1827
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1906

Una Stefánsdóttir fæddist árið 1827 í Húnavatnssýslu, d. 9. ágúst,1906.

Maki: Oddleifur Sigurðsson f. 8. september, 1826 í Dalasýslu. Dáinn í Nýja Íslandi árið 1876.

Börn: 1. Stefán f. 1864, d. 1903 í Nýja Íslandi 2. Gestur f. 1867 3. Ingibjörg f. 1868. Oddleifur átti Sigurð með fyrri konu.

Þau fóru vestur árið 1874 með Gest og Ingibjörgu og voru í Kinmount fyrsta árið. Fluttu um haustið 1875 til Nýja Íslands. Stefán fór vestur þangað árið 1885 og Sigurður 1902.