ID: 5530
Fæðingarár : 1842
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1928
Jónatan Jónsson fæddist í Húnavatnssýslu 25. janúar, 1842. Dáinn í Árnesbyggð 4. júní, 1928.
Maki: 1876 Marsibil Jónsdóttir f. í Húnavatnssýslu árið 1851, d. í Árnesbyggð árið 1916.
Börn: 1. Marsibil f. 1877 2. Jóhann Valdimar f. 1887.
Þau fluttu vestur til Nýja Íslands árið 1887 og voru fyrst á Gimli. Námu land í Árnesbyggð og kölluðu Brú. Þar var póstafgreiðsla sett upp sem þau önnuðust.
