
Friðrika Pétursdóttir og Páll Friðriksson Vídalín: Mynd IRS
Páll Friðriksson fæddist 26. desember, 1880 í Húnavatnssýslu. Hann dó í Nýja Íslandi 13. september, 1958. Vídalín vestra.
Maki: 1910 Friðrika Pétursdóttir f. í Nýja Íslandi 19. júlí, 1884, d. í Selkirk árið 1973.
Börn: 1. Sigurlaug Hólmfríður f. 11. apríl, 1911 2. Friðrik f. 19. september, 1913 3. Jóhanna Lovísa f. 22. nóvember, 1914 4. Ragnheiður f. 13. júlí, 1916 5. Lárus f. 14. janúar, 1918 6. Petrína Vilborg f. 14. janúar, 1918 7. John Franklin f. 6. febrúar, 1922 8. David Ólafur f. 24. mars, 1925 9. Páll Haraldur f. 2. apríl, 1928. Öll voru börnin fædd í Árskógi við Íslendingafljót.
Páll fór vestur með móður sinni, Sigurlaugu Jónsdóttur og eldri systur, Ragnheiði árið 1887. Þau bjuggu í Winnipeg til ársins 1892 og fóru þaðan í Fljótsbyggð í Nýja Íslandi þar sem Páll bjó alla tíð. Friðrika var dóttir Péturs Árnasonar í Árskógi í sömu byggð. Tók Páll við þeirri jörð og bjó á henni alla tíð.
