Jónas Nikulásson

ID: 19577
Fæðingarár : 1888
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1948

Jónas Nikulásson fæddist í Dalasýslu 28. september, 1888. Dáinn í Vancouver 8. janúar, 1948.

Maki: Rósa (Rose) af enskum ættum.

Börn: 1. Hermann Kristján 2. Lára.

Jónas var sonur Nikulásar Jónssonar og Margrétar Jónsdóttur í Dalasýslu. Hann lærði trésmíði í Reykjavík og flutti vestur eftir 1910. Hann var fyrst í Winnipeg en fór þaðan vestur til Vancouver.