ID: 19601
Fæðingarár : 1859
Fæðingarstaður : Borgarfjarðarsýsla
Dánarár : 1949
Kristján Gunnarsson fæddist í Borgarfjarðarsýslu 17. júlí, 1858. Dáinn í Minnesota 18. maí, 1949. Chris Gunderson vestra.
Maki: Margrét Guðmundsdóttir f. 9. febrúar, 1859, d. 19. ágúst, 1916 í Duluth í Minnesota.
Börn: 1. Kristín (Christine) f. árið 1887, d. úr spönsku veikinni árið 1918 2. Hjálmar f. 1889 3. Björn (Byron) Guðbrandur f. 13. júlí, 1891 í Duluth 4. Leon Einar f. 17. ágúst, 1893 í Duluth.
Þau fluttu til Vesturheims árið 1887 og voru sest að í Duluth í Minnesota árið 1891. Þar var Kristján með mjólkurbú og var skráður til heimilis að 6403 Wadena St. í manntali 1895. Í manntali 1910 er hann skráður kaupmaður en 1930 er hann búsettur hjá Birni, syni sínum í Hermantown, nú úthverfi í Duluth.
