ID: 5804
Fæðingarár : 1872
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1947
Elísabet Gunnlaugsdóttir fæddist 1872 í Húnavatnssýslu. Dáin á Gimli árið 1947.
Maki: Einar Jónasson f. í Húnavatnssýslu árið 1868. Dáinn á Gimli 1950.
Börn: 1. Jón Margeir d. 1903 2. Þorbjörg Jónína f. 1904, d. 1932 3. Margeir Osvald f. 1908 4. Valdheiður Lára tvíburi f. 1908.
Einar og Elísabet fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1899 þar sem þau gengu í hjónaband. Þau voru stutt í N. Dakota og vestur í Seattle en sneru þá aftur til Íslands árið 1905 og munu hafa verið á Vestfjörðum þar sem Elísabet ól tvíburana árið 1908. Þau fluttu aftur vestur til Manitoba árið 1910 og bjuggu í Winnipeg. Þar voru þau til ársins 1917 en þá settust þau að í Árnesi, norður af Gimli. Unnu í Winnipeg á sumrin en enduðu á Gimli sín síðustu ár.
