Þórdís Halldórsdóttir

ID: 19684
Fæðingarár : 1843
Fæðingarstaður : A. Skaftafellssýsla
Dánarár : 1907

 Þórdís Halldórsdóttir fæddist í A. Skaftafellssýslu árið 1843. Dáin í Manitoba árið 1907.

Maki: Jón Jónsson f. í Dilkanesi í A. Skaftafellssýslu árið 1847, d. í Framnesbyggð í Manitoba árið 1911.

Börn: 1. Jón f. 1874 2. Halldóra f. 1876, d. um 1900 3. Vilborg f. 1880. Þau tóku í fóstur í Ísafoldarbyggð Sigríði Jóhannsdóttur f. 21. október, 1891.

Þau fluttu vestur til Kanada árið 1893 og settust að í Ísafoldarbyggð. Neyddust til að hverfa þaðan skömmu eftir aldamót vegna flóða í Winnipegvatni. Námu land í Framnesbyggð og bjuggu þar síðan.