Valgerður Kristjánsdóttir

ID: 6076
Fæðingarár : 1858
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1898

Valgerður Kristjánsdóttir fæddist í Skagafjarðarsýslu 20. júní, 1858. Dáin 21. september, 1898 í N. Dakota. Valney Stephan í sumum heimildum vestra.

Maki: Magnús Vilhjálmur Magnússon f. 25. maí, 1858 í S. Þingeyjarsýslu, d. í N. Dakota 13. desember, 1918. Melsted vestra.

Börn: 1. Elín Stefanía f. 24. ágúst, 1886 2. Kristín Lilja f. 1. nóvember, 1887 3. Sigríður f. 10. febrúar, 1889 4. Guðrún f. 12. júní, 1891 5. Karl f. 8. janúar, 1893 6. Stefán dó í fæðingu.

Valgerður fór vestur til Ontario í Kanada árið 1874 og þaðan austur í Markland í Nova Scotia ári síðar. Flutti svo til N. Dakota upp úr 1880. Magnús flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876, með móður sinni, Elínu Magnúsdóttur, stjúpföður, Ólafi Jónssyni og systkinum. Þau settust að á Melstað nærri Gimli og bjuggu þar til ársins 1881. Fluttu þá í Garðarbyggð í N. Dakota.