
Skafti B Brynjólfsson Mynd Heimskringla
Skafti Brynjólfur Brynjólfsson fæddist 29. október, 1860 í Húnavatnssýslu. Dáinn í Winnipeg 21. desember, 1914.
Maki: 1. nóvember, 1892 Gróa Sigurðardóttur f. 1864 í Húnavatnssýslu, d. 1940 í Manitoba.
Barnlaus.
Skafti flutti vestur til Kanada árið 1874 með foreldrum sínum, Brynjólfi Brynjólssyni og Þórunni Ólafsdóttur. Þau voru í Kinmount í Ontario fyrsta árið en haustið 1875 settust þau að í Marklandi í Nova Scotia. Þau fluttu þaðan til Duluth í Minnesota árið 1881 og þaðan lá leiðin í Pembina sýslu þar sem faðir hans nam land milli Mountain og Hallson. Skafti bjó þar til ársins 1902 en þá flutti hann til Winnipeg. Skafti sat á þingi í N. Dakota tvö kjörtímabil frá 1890 til ársins 1898. Gróa flutti vestur til Ontario í Kanada árið 1873 með foreldrum sínum, Sigurði Jóni Jóhannessyni og Guðrúnu Guðmundsdóttur. Hún var með þeim í Marklandi í Nova Scotia árið 1875-1882 en þau fluttu þá til Winnipeg.
