Magnús Steinsson

ID: 19751
Fæðingarár : 1861
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla

Magnús Steinsson fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1861.

Maki: 1890 í Calgary Ásta Salvör Þorvarðardóttir f. í Ísafjarðarsýslu árið 1857.

Börn: 1. Þorsteinn Óskar, d. ungur 2. Össur Kristján 3. Ásta 4. Guðrún.

Magnús flutti vestur til Winnipeg árið 1883 og vann á ýmsum stöðum í Manitoba, helst járnbrautavinnu. Flutti vestur til Calgary árið 1890, kvæntist það ár og nam svo land í Alberta nýlendunni nærri Burnt Lake ári síðar. Það reyndist ekki gott, skilaði hann því og flutti næst vestur að Medicine ánni þar sem hann var einhvern tíma. Árið 1898 nam hann svo land vestan árinnar og bjó þar til ársins 1907, seldi þá og flutti norður í bæinn Ponoka. Vann járnbrautavinnu eftir það. Ásta Salvör flutti vestur til Manitoba árið 1888.