
Vilhelmína P Þórðardóttir Mynd VÍÆ III
Vilhelmína Pálína Þórðardóttir fæddist 14. janúar, 1858 í Eyjafjarðarsýslu Dáin 7. maí, 1933 í Winnipeg.
Maki: 1889 Jón Sigurðsson f. árið 1850 í S. Þingeyjarsýslu. John Sigurdson vestra.
Börn: 1. Sigurður f. 1877 sonur Jórunnar Ólafsdóttur 2. Anna (Annie) Þórdís f. 8. júlí, 1891, d. 8. maí, 1915 3. Emma Jóhanna Elín f. 8. júlí 1891 (tvíburi) 4. Margaret f. 4. desember, 1892 5. Hermann f. 6. desember, 1897 6. Aðalsteinn f. 2. maí, 1902, d. 10. október, 1959.
Þau fluttu til Winnipeg í Manitoba árið 1888 og fóru suður til N. Dakota þar sem þau bjuggu í tvö ár. Þaðan fluttu þau til Narrows í Manitoba þar sem þau bjuggu eitthvað en um 1905 settust þau að í Lundarbyggð. Þaðan lá svo leiðin til Eriksdale árið 1910.
