Valgerður Jónsdóttir

ID: 6282
Fæðingarár : 1841
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1927

Valgerður Jónsdóttir fæddist í Húnavatnssýslu árið 1841. Dáin í Nýja Íslandi 19. júní, 1927.

Maki: Sigurður Guðmundsson f. í Húnavatnssýslu árið 1844, d. 5. apríl, 1920. Tók nafnið Nordal, dregið af Norðurárdal.

Börn: 1. Guðmundur f.1866 2. Sigurður Halldór f.1871 3. Björg f.1873 4. Sigríður 5. Jón 6. Margrét 7. Jane Lock 8. Jóhannes.

Fluttu vestur til Kanada 1874. Fluttu í Markland í Nova Scotia og þar fæddust 3 börn þau Margrét, Jane Lock og Jón. Þaðan fluttu þau vestur á sléttuna og árið 1888 settust þau að á land sitt í Geysirbyggð. Kallaði staðinn Norðtungu.