
Regína Jónsdóttir Mynd VÍÆ III
Regína Jónsdóttir fæddist 27. ágúst, 1883 í Garðarbyggð. Dáin 7. maí, 1958 í Red Deer. Regina Jónsdóttir Strong vestra.
Maki: 4. janúar, 1905 Guðmundur Stefánsson fæddist í Garðarbyggð í N. Dakota 9. desember, 1881. Dáinn í Red Deer í Alberta 4. mars, 1947. Gudmundur Stephanson vestra.
Börn: 1. Helga Sigurlaug f. 25. nóvember, 1906 2. Stefán Jón f. 13. ágúst, 1908 3. Guðbjörg Florence f. 10. ágúst, 1910 4. Rósa Ethel f. 2. janúar, 1912 5. Ármann Edwin f. 14. desember, 1913 6. Svava Emelie f. 4. júlí, 1916 7. Wilfred Guðmundur f. 10. ágúst, 1919 8. Haraldur Lorne f. 7. febrúar, 1923.
Regína var dóttir Jóns Jónssonar úr S. Þingeyjarsýslu og konu hans Helgu Davíðsdóttur úr Axarfirði sem vestur fluttu árið 1874. Þau bjuggu í N. Dakota en fluttu um 1880 til Alberta. Guðmundur óx úr grasi í Garðarbyggð en flutti vestur til Alberta árið 1889 með foreldrum sínum, Stefáni Guðmundssyni (Stephan G Stephanson) og Helgu Jónsdóttur. Þau bjuggu nálægt Markerville og þar í þorpinu rak Guðmundur verslun með Jóni Benediktssyni 1909-1926. Hann seldi sinn hlut, flutti til Innisfail þar sem hann vann við flutninga en rak um leið kjötmarkað. Árið 1933 settut þau að í Red Deer og vann Guðmundur þar einkum við smíðar.
