ID: 19800
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1889
Fæðingarstaður : Innisfail

Jóný S Stefánsdóttir Mynd VÍÆ III
Jóný Sigurbjörg Stefánsdóttir fæddist í Innisfail í Alberta 6. október, 1889. Jenny Kristjansson vestra
Maki: 11. júní, 1922 Sigurður Kristjánsson f. í Argylebyggð 7. nóvember, 1888, d. 8. júlí, 1960.
Börn: 1. Kaðlín Edna f. 30, júní, 1923.
Jóný var dóttir Stefáns Guðmundssonar (Stephan G Stephanson) og Helgu Jónsdóttur, landnema við Markerville í Alberta. Sigurður var sonur Kristjáns Sigurðssonar og Jóhönnu Guðrúnu Bjarnadóttur landnema í Argylebyggð árið 1882.
