Sigurður Jónsson

ID: 19838
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1889
Fæðingarstaður : Nýja Íslandi

Sigurður Jónsson Mynd VÍÆ III

Sigurður Jónsson fæddist í Árnesbyggð í Nýja Íslandi 11. mars, 1889. Sigurdur J Thorkelsson vestra.

Maki: 14. janúar, 1919 Jóhanna Sumarliðadóttir f. 14. júlí, 1893.

Börn: 1. Stefanía Björnfríður f. 16. nóvember, 1919 2. Guðríður Kristrún f. 14. janúar, 1922 3. Guðrún Metta f. 22. mars, 1923 4. Jóna f. 26. maí, 1924 5. Sigurjón f. 8. ágúst, 1925 6. Emily Júlíana f. 27. september, 1928 7. Kristján Haraldur f. 9. nóvember, 1933 8. fóstursonur Philip Jón f. 7. maí, 1941.

Sigurður var sonur Jóns Jónssonar og Kristjönu Magnúsdóttur, landnema í Nýja Íslandi árið 1886. Þar ólst hann upp, tók við búskap föður síns, sem bjó á Fagranesi í Árnesbyggð. Jóhanna flutti vestur árið 1901 með móður sinni, ekkjunni Súsönnu Guðrúnu Jónsdóttur frá Ásbjarnarstöðum á Vatnsnesi.