
Anna Vilhjálmsdóttir Mynd VÍÆ III
Anna Vilhjálmsdóttir fæddist í Gullbringusýslu 10. nóvember, 1851. Dáin 6. október, 1927.
Maki: Séra Oddur Vigfús Gíslason f. í Reykjavík 8. apríl, 1836, d. í Winnipeg 10. janúar, 1911.
Börn: 1. Vilhjálmína Þórunn f. 17. mars, 1872 2. Rósa Aldís f. 10. júní, 1874 3. Steinunn f. 7. janúar, 1876 4. Sigríður f. 23. febrúar, 1877, d. í æsku 5. Sigríður f. 13. nóvember, 1878 6. Karen Jakobína f. 16. október, 1880 7. Steinunn Anna f. 11. nóvember, 1881 d. í æsku 8. Gísli f. 15. júlí, 1883 9. Vilhjálmur Kristinn f. 3. október, 1885, fór ekki vestur 10. Ragnheiður Sigríður f. 16. júlí, 1887 11. Hans Theódór Ágúst f. 17. mars, 1889 12. Helgi f. 26. febrúar, 1890, d. í æsku 13. Anna f. 11. ágúst, 1891.
Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1894 og fóru í Nýja Ísland. Séra Oddur svaraði kalli úr nýlendunni og settist fjölskyldan að í Riverton. Þaðan þjónaði hann í hinum ýmsu byggðum til ársins 1903 en þá fluttu þau til Winnipeg.

Sitjandi fremst: Ragnheiður f. 1887, Ágúst f. 1889 og Anna f. 1891. Hjónin séra Oddur og Anna þar fyrir aftan. Standandi: Jakobína f. 1880, Rósa f. 1874, tengdasonurinn Ólafur Ketilsson, Steinunn, kona hans f. 1876, Vilhjálmína f. 1872, Sigríður f. 1877 og Gísli f. 1883.
