Sigurbjörn Eggertsson

ID: 8085
Fæðingarár : 1895
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1977

Sigurbjörn Eggertsson Mynd VÍÆ I

Sigurbjörn Eggertsson fæddist 11. september, 1895 í Fagraskógi í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn í Vancouver í Bresku Kólumbíu 15. ágúst, 1977.

Maki 1) 28. mars, 1924 Ingibjörg Jónsdóttir f. 25. ágúst, 1896 d. í mars, 1963 2) 1965 Hildur Árnadóttir f. 17. maí, 1990, d. árið 1975.

Börn: Með Ingibjörgu 1. Björn f. 24. september, 1928.

Sigurbjörn sleit barnsskónum í Fagraskógi með jafnaldra sínum, Davíð Stefánssyni, sem seinna varð eitt ástsælasta skáld Íslands. Hann flutti vestur um haf árið 1906 með foreldrum sínum, Eggerti Sigurgeirssyni og Svanhildi Sigurbjörnsdóttur. Þau námland í Siglunesbyggð í Manitoba og þar bjó Sigurbjörn fyrstu árin. Hann gekk í verslunarskóla í Winnipeg og gerðist verslunarmaður í borginni 1915 til 1921. Hann keypti í félagi við Jón Bergman gömul verslunarhús í Vogum í Manitoba og hóf eigin verslunarrekstur. Vann við verslunina alla tíð. Ingibjörg var dóttir Jóns Jónssonar á Sleðbrjót í N. Múlasýslu og konu hans, Guðrúnar Jónsdóttur. Þau fluttu til Vesturheims árið 1903.