Anna R Johnson
Anna Ragnheiður Björnsdóttir fæddist í Winnipeg 13. ágúst, 1892. Anna R Johnson vestra. Ógift og barnlaus. Anna var dóttir Björns Björnssonar og Vigdísar Bjarnadóttur sem vestur fluttu til Winnipeg árið 1889. Hún bjó í borginni í mörg ár, vann hjá Hudson Bay fyrirtækinu í 35 ár en flutti þá vestur til Vancouver.
