Sigurður Ingimundur Sigurðsson fæddist í Mýrasýslu 2. október, 1882. Dáinn í Lundar 29. janúar, 1965. Ingimundur Sigurdson vestra. Maki: 16. júlí, 1911 Ásta Jóhannsdóttir Straumfjörð f. 1. september, 1879 í Mikley, d. 13. september, 1966. Börn: 1. Jóhann Straumfjörð f. 22. maí, 1912 2. Bergþóra Kristbjörg f. 28. mars, 1915 3. Sigurður Jón Trausti (Tracey) f. 25. janúar, 1919 4. …
Gróa Sigurðardóttir
Gróa Sigurðardóttir fæddist í Mýrasýslu 15. mars, 1884. Dáin í Lundar í Manitoba 16. ágúst, 1964. Ógift og barnlaus. Gróa flutti vestur til Manitoba árið 1887 með foreldrum sínum, Sigurði Sigurðssyni og Bergþóru Bergþórsdóttur. Þau bjuggu fyrst í Mikley þar sem Gróa ólst upp en fluttu í Lundarbyggð árið 1903.
Ragnheiður Sigurðardóttir
Ragnheiður Sigurðardóttir fæddist árið 1885 í Mýrasýslu. Dáin í Lundarbyggð 1. nóvember, 1936. Ógift og barnlaus. Ragnheiður var dóttir Sigurðar Sigurðssonar og Bergþóru Bergþórsdóttur sem vestur fóru árið 1887 og settust að á Mikley. Fluttu þaðan í Lundarbyggð 1903. Ragnheiður ólst upp í Mikley og fór með foreldrum sínum til Otto í Lundarbyggð. Þar veiktist hún alvarlega árið 1922 og …
Dýrfinna Sigurðardóttir
Dýrfinna Sigurðardóttir fæddist í Mýrasýslu árið 1840. Dáin í Lundarbyggð 29. janúar, 1919. Maki: Ingimundur Pálsson d. á Íslandi. Börn: Guðfinna Þóra Þórðardóttir f. 1862, fór ekki vestur. Dýrfinna fór vestur árið 1887 með húsbændum sínum, Sigurði Sigurðssyni og Bergþóru Bergþórsdóttur. Fyrri maður hennar, Þórður Guðmundsson í Ánabrekku var barnsfaðir Dýrfinnu. Dýrfinna bjó hjá þeim í Lundarbyggð alla tíð.
