Björn Finnsson
Björn Finnsson fæddist í Húnavatnssýslu árið 1832. Dáinn í Manitoba 9. júní, 1906. Maki: Þóra Halldórsdóttir f. í Snæfellsnessýslu árið 1854. Björn fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1888 og þaðan til Glenboro. Systir hans, Guðbjörg, var þangað komin og bjuggu þau saman þar einhvern tíma.
