Sigurlaug Steinsdóttir
Sigurlaug Steinsdóttir fæddist 22. júlí, 1866 í Eyjafjarðarsýslu. Dáin 4. maí, 1938 í Manitoba. Maki: 30. júní, 1891 Sveinn Tómasson fæddist í Borgarfjarðarsýslu 7. maí, 1859. Dáinn í Manitoba 16. apríl, 1941. Thompson vestra. Börn: 1. Steinn Ólafur f. 23. nóvember, 1893 2. Ingibjörg d. 1925 3. Jón 4. Tómasína 5. Guðrún 6. Emily 7. Sveinn 8. Franklin. Sveinn fór …
Ólafur T Stefánsson
Ólafur Tryggvi Stefánsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu árið 1859. Ókvæntur og barnlaus Hann flutti vestur til Ontario í Kanada með Magnúsi bróður sínum árið 1873. Þeir fóru saman til Nýja Íslands árið 1875 og þar lést Ólafur.
Jónas Jónsson
Jónas Jónsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu 13. ágúst, 1828. Dáinn á Akureyri 15. febrúar, 1907. Sigluvíkur – Jónas. Ókvæntur og barnlaus Fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1884 og þaðan í Cavalierbyggð í N. Dakota. Sneri aftur til Íslands og dó þar.
Björn Sigurðsson
Björn Sigurðsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu 5. september, 1852. Maki: 1879 Guðrún Jónsdóttir f. 1855. Börm: 1. Ingibjörg f. 1880 2. Hallgrímur f. 1882 3. Margrét 4. Sigurjóna 5. Vilhjálmur 6. Arinbjörn. Systir Björns, Guðleif átta ára fór með þeim vestur. Björn flutti til Winnipeg í Manitoba árið 1883 og settist að suðaustan til í Sandhæðabyggð í N. Dakota.
