Ingibjörg K Magnúsdóttir

[ihc-hide-content ihc_mb_type="show" ihc_mb_who="3,2,1" ihc_mb_template="2" ]

Ingibjörg Katrín Magnúsdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu 15. maí, 1868. Dáin 29 september, 1926 í Minneapolis. Emma K Bjering vestra. Ógift og barnlaus. Hún flutti vestur til Minnesota árið 1888 þar sem móðir hennar, Vilhelmína Bjering, systkini og fændur voru sest að. Hún bjó í Minneapolis alla tíð og þar lést hún í bílslysi.  

[/ihc-hide-content]

Hannes Skúlason

[ihc-hide-content ihc_mb_type="show" ihc_mb_who="3,2,1" ihc_mb_template="2" ]

Hannes Skúlason fæddist á Gimli í Nýja Íslandi árið 1878.  Dáinn í Wynyard í Saskatchewan árið 1951. Anderson vestra. Maki: 1908 Margrét Guðmundsdóttir f. 23. desember, 1888 í Rangárvallasýslu, d. í Wynyard 1949. Börn: 1. Sigríður 2. Lára 3. Skúli 4. Kristín (Christine) 5. William 6. Louisa 7. Karl (Carl) 8. Erlendur (Erlend eða Earle) 9. Hannes (Hank). Hannes var …

[/ihc-hide-content]

Sigríður Gísladóttir

[ihc-hide-content ihc_mb_type="show" ihc_mb_who="3,2,1" ihc_mb_template="2" ]

Sigríður Gísladóttir fæddist. 1847 á Íslandi. Maki: Guðmundur Vigfússon f. á Íslandi árið 1847. Goodman vestra. Börn: Jóhanna (Annie) Ingibjörg f. 17. maí, 1889 2. Lilly f. 1891 3. Vigfús f. 1894. Þau fluttu vestur árið 1887 og settust fyrst að í Duluth í Minnesota. Þar var Jóhanna skírð af séra Níels Steingrími Thorlaksson,  fyrsta, íslenska barnið sem skírt var þar …

[/ihc-hide-content]

Guðmundur Vigfússon

[ihc-hide-content ihc_mb_type="show" ihc_mb_who="3,2,1" ihc_mb_template="2" ]

Guðmundur Vigfússon fæddist á Íslandi árið 1847. Goodman vestra. Maki: Sigríður Gísladóttir f. 1847 á Íslandi. Börn: Jóhanna (Annie) Ingibjörg f. 17. maí, 1889 2. Lilly f. 1891 3. Vigfús f. 1894. Þau fluttu vestur árið 1887 og settust fyrst að í Duluth í Minnesota. Þar var Jóhanna skírð af séra Níels Steingrími Thorlaksson,  fyrsta, íslenska barnið sem skírt var …

[/ihc-hide-content]

Ingveldur Ingimundardóttir

[ihc-hide-content ihc_mb_type="show" ihc_mb_who="3,2,1" ihc_mb_template="2" ]

Ingveldur Ingimundardóttir fæddist 6. ágúst, 1859 í Árnessýslu. Dáin 30. maí, 1957 í St. Louis sýslu í Minnesota. Inga Bachman vestra. Maki: Jón Þorsteinsson f. 4. desember, 1859 í Hrútafirði í Húnavatnssýslu, d. í Duluth 20. júlí, 1945. Börn: 1. Marta (Martha) f. 22. október, 1895 2. Óskar (Oscar) Valtýr f. 24. mars, 1897. Jón flutti vestur til Winnipeg árið 1886 …

[/ihc-hide-content]

Rögnvaldur Stefánsson

[ihc-hide-content ihc_mb_type="show" ihc_mb_who="3,2,1" ihc_mb_template="2" ]

Rögnvaldur Walter Stefánsson fæddist 12. júlí, 1887 í Duluth í Minnesota. Walter Stevenson vestra. Maki: 1925 Margaret Lamont af kanadískum ættum. Börn: 1. Mavis 2. Marcia. Rögnvaldur var sonur Sigmundar Stefánssonar og Maríu Guðmundsdóttur frá Hnausum í Húnavatnssýslu. Þau settust að í Duluth, fóru þaðan til Selkirk í Manitoba og loks í Vatnabyggð í Saskatchewan. Þar tók Rögnvaldur við landi …

[/ihc-hide-content]

Sigrún Guðmundsdóttir

[ihc-hide-content ihc_mb_type="show" ihc_mb_who="3,2,1" ihc_mb_template="2" ]

Sigrún Guðmundsdóttir fæddist 31. júlí 1875 í Árnessýslu. Dáin 10. febrúar, 1917 í Manitoba. Maki: Eyjólfur Erlendsson f. 3. mars, 1868 í Árnessýslu. Dáinn 9. júlí, 1909 í Manitoba. Börn: 1. Guðfinna Margrét, f. 1902 2. Erlendur, f. 1904 3. María Eyjólfsdóttir, f. 1907. Eyjólfur fór vestur samferða Guðjóni, bróður sínum og hans fjölskyldu árið 1899. Eyjólfur og Sigrún gengu í …

[/ihc-hide-content]

Þórunn Jónsdóttir

[ihc-hide-content ihc_mb_type="show" ihc_mb_who="3,2,1" ihc_mb_template="2" ]

Þórunn Jónsdóttir frá Akurey í Rangárvallasýslu fæddist árið 1882. Maki: Gestur Jóhannesson f. 8. ágúst, 1889 í Roseau í Minnesota. Þórunn var dóttir Jóns Einarssonar og Arnbjargar Andrésdóttur. Óvíst með brottför Þórunnar frá Íslandi. Gestur flutti með foreldrum sínum, Jóhannesi Jóhannssyni og Guðrúnu Sigríði Halldórsdóttur frá Roseau í Pine Valley byggð árið 1900.

[/ihc-hide-content]

Margrét G Hallgrímsdóttir

[ihc-hide-content ihc_mb_type="show" ihc_mb_who="3,2,1" ihc_mb_template="2" ]

Margrét Guðrún Hallgrímsdóttir fæddist í Húnavatnssýslu árið 1852. Maki: Árni Hannesson fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1845. Börn: 1. Eggert 2. Jón 3. Hallgrímur 4. Óli 5. Tryggvi. Tveir synir, Hannes og George dóu í æsku. Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1888 og fóru vestur í Þingvallabyggð í Saskatchewan. Dvöldu í Churchbridge fyrst um sinn en námu svo land …

[/ihc-hide-content]

Óskar Pétursson

[ihc-hide-content ihc_mb_type="show" ihc_mb_who="3,2,1" ihc_mb_template="2" ]

Óskar Pétursson fæddist á Íslandi árið 1858. Oscar Peterson vestra. Ókvæntur og barnlaus. Vesturíslensk heimild segir hann hafa komið til N. Ameríku árið 1890 og sest að í Duluth. Þar er hann búsettur í manntali 1895 og öðru 1900. Vann við mjólkurflutninga fyrir landa sína í borginni. Mun hafa búið hjá Páli Bergssyni og fjölskyldu hans um aldamótin.

[/ihc-hide-content]