Jónína Ólafsdóttir fæddist í Strandasýslu 18. febrúar, 1876. Barn. Hún fór til Kanada árið 1883 með foreldrum sínum, Ólafi Ólafssyni og Málfríði Jónsdóttur. Þau bjuggu í Gravenhurst í Ontario um aldamótin. Frekari upplýsingar vantar um Jónínu vestra.
Þorkell Ólafsson
Þorkell Ólafsson fæddist í Strandasýslu 2. maí, 1878. Barn. Hann fór til Kanada árið 1883 með foreldrum sínum, Ólafi Ólafssyni og Málfríði Jónsdóttur. Þau bjuggu í Gravenhurdt í Ontario um aldamótin. Upplýsingar vantar um Þorkel vestra.
Jón Árnason
Jón Árnason fæddist 20. september, 1852 í Strandasýslu. Maki: Helga Hjaltadóttir f. 2. apríl, 1853. Börn: Anna f. í Oak Point. Helga átti Sigríði Jóhannsdóttur f. 4. apríl, 1870 með fyrri eiginmanni, Jóhanni Magnússyni. Þau fluttu vestur árið 1883 og gerðust bændur í Oak Point.
Helga Hjaltadóttir
Helga Hjaltadóttir fæddist 2. apríl, 1853 í Strandasýslu. Maki: Jón Árnason f. 20. september, 1852 í Strandasýslu. Barnlaus en Helga átti Sigríði Jóhannsdóttur f. 4. apríl, 1870 með fyrri eiginmanni, Jóhanni Magnússyni. Þau fluttu vestur árið 1883. Frekari upplýsingar vantar um þau vestra.
Sigríður Jóhannsdóttir
Sigríður Jóhannsdóttir fæddist í Strandasýslu 4. apríl, 1870. Barn. Hún fór til Vesturheims árið 1883 með móður sinni, Helgu Hjaltadóttur.
Guðmundur Jónsson
Guðmundur Jónsson fæddist í Barðastrandarsýslu 24. nóvember, 1866. Dáinn í Manitoba 12. ágúst, 1945. Maki: Margrét Bjarnadóttir f. 24. mars, 1866, d. 3. september, 1938 á Gimli í Nýja Íslandi. Börn: 1. Jón f. 1888 2. Einar 3. Ágústína Helga f. á Gimli 17. ágúst, 1906. Þau fóru vestur til Winnipeg árið 1888 og bjuggu þar fyrsta árið. Með þeim …
Margrét Bjarnadóttir
Margrét Bjarnadóttir fæddist 24. mars, 1866 í Strandasýslu. Dáin 3. september, 1938 á Gimli í Nýja Íslandi. Maki: Guðmundur Jónsson f. í Barðastrandarsýslu 24. nóvember, 1866, d. í Manitoba 12. ágúst, 1945. Börn: 1. Jón f. 1888 2. Einar 3. Ágústína Helga f. á Gimli 17. ágúst, 1906. Þau fóru vestur til Winnipeg árið 1888 og bjuggu þar fyrsta árið. …
Jón Guðmundsson
Eggert Sigurðsson
Eggert Sigurðsson fæddist 8. apríl, 1860 í Strandasýslu. Ókvæntur og barnlaus Eggert fór vestur um haf með foreldrum sínum, Sigurði Gíslasyni og Guðrúnu Jónsdóttur árið 1883. Þau settust í Sandhæðabyggð í N. Dakota.
Margrét Sigurðardóttir
Margrét Sigurðardóttir fæddist 14. mars, 1862 í Strandasýslu. Dáin 7. maí, 1942. Ógift og barnlaus Fór vestur um haf með foreldrum sínum, Sigurði Gíslasyni og Guðrúnu Jónsdóttur árið 1883. Þau settust í Sandhæðabyggð í N. Dakota. Upplýsingar vantar um Margréti vestra.
