Tómas Hjörtur Tómasson fæddist í Dalasýslu 20. júlí, 1868. Barn. Fór vestur árið 1876 með föður sínum, Tómasi Kristjánssyni og systkinum. Þau fóru til Manitoba. Frekari upplýsingar um Tómas vantar, mun hugsanlega hafa dáið ungur.
Rósa Ólafsdóttir
Rósa Ólafsdóttir fæddist 17. desember, 1850 í Dalasýslu. Dáin í Tantallon í Saskatchewan 20. mars, 1915. Maki: 1885 Þórður Þórðarson f. 1830 í Vopnafirði, N. Múlasýslu, d. 18. maí, 1904. Börn: 1. Lára Sesselja. Rósa flutti vestur árið 1883 og settist að í Winnipeg. Hún flutti með Þórði í Þingvallabyggð í Saskatchewan árið 1886 og bjó hún þar til ársins …
Eyjólfur Halldórsson
Eyjólfur Halldórsson fæddist árið 1827 í Borgarfjarðarsýslu. Dáinn 14. desember, 1901 í Winnipeg. Borgfjörð vestra. Maki: Guðrún Jónsdóttir f. 11. janúar, 1833, d. í Winnipeg 6. janúar, 1908. Barnlaus. Þau fluttu vestur til Winnipeg árið 1887 og með þeim tökubarn, Halldór Þórólfsson 7 ára. Þau bjuggu í Winnipeg alla tíð.
Guðrún Jónsdóttir
Guðrún Jónsdóttir fæddist í Dalasýslu 11. janúar, 1833. Dáin í Winnipeg 6. janúar, 1908. Maki: Eyjólfur Halldórsson f. árið 1827 í Borgarfjarðarsýslu, d. 14. desember, 1901 í Winnipeg. Borgfjörð vestra. Barnlaus. Þau fluttu vestur til Winnipeg árið 1887 og með þeim tökubarn, Halldór Þórólfsson 7 ára. Þau bjuggu í Winnipeg alla tíð.
Halldór Þórólfsson
Halldór Þórólfsson fæddist 26. október, 1879 í Dalasýslu. Dáinn í Winnipeg 28. janúar, 1956. Maki: Friðrika Friðriksdóttir f. 27. mars, 1879 í Winnipeg. Börn: 1. Pearl f. 25. september, 1904 2. Frank f. 1914, d. 1975. Halldór var sonur Þórólfs Jónssonar í Miðdölum og Halldóru Halldórsdóttur. Hún lést þegar Halldór var á þriðja ári. Hann flutti vestur árið 1887 með …
Þorsteinn Jónsson
Þorsteinn Jónsson fæddist í Hörðudal í Dalasýslu 18. júlí, 1840. Dáinn í Lundarbyggð 12. september, 1911. Hördal vestra. Maki: Ragnhildur Jónsdóttir f. í Snæfellsnessýslu árið 1837. Börn: 1. Björn f. 1868 2. Guðrún f. 1872 3. Ingibjörg f. 1875. Þau fóru vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 og þaðan til Nýja Íslands. Þau fluttu suður til N. Dakota þar …
Elínborg Jóhannsdóttir
Elínborg Jóhannsdóttir fæddist í Snæfellsnessýslu 16. mars, 1829. Dáin í Winnipeg 16. júlí, 1899. Maki: Einar Einarsson d. 25. júní, 1885. Börn: 1. Einar f. 1861 2. Árni f. 1862 Elinborg fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1888. Þar beið hennar Árni sonur hennar sem vestur fór árið á undan. Einar, sonur hennar fór svo vestur árið 1889. Þau …
Kristján Guðnason
Kristján Guðnason fæddist 16. febrúar, 1875 í Dalasýslu. Dáinn í Lundar 19. maí árið 1938. Backman vestra. Maki: 30. mars, 1898 Jóna Helga Jónsdóttir f. 13. júlí, 1875, d. 8. september, 1927. Börn: 1. Daníel Baldvin f. 26. desember, 1899 2. Halldóra f. 17. september, 1902 3. Guðný (Gwen) f. 2. mars, 1904 4. Kristján Vilhjálmur f. 27. janúar, 1906 …
Kristján E Guðnason
Kristján Engilbert Guðnason fæddist 7. nóvember, 1879 í Dalasýslu. Dáinn í Manitoba 18. apríl, 1903. Barn. Kristján fór vestur árið 1888 með bróður sínum og nafna. Þeir fóru til Winnipeg.
Jón Jónsson
Jón Jónsson fæddist í Mýrasýslu árið 1868. Dáinn í Lundarbyggð 1907. Myrdal vestra. Maki: Ingveldur Guðnadóttir f. 19. apríl, 1869, d. 11. desember, 1949. Börn: 1. Guðni f. 11. október, 1894 2. Guðný f. 1897, d. 1900 3. Kristján Jens f. 1900, d. 1945. Jón og Ingveldur voru samferða vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1893 ásamt bræðrum hennar, Guðmundi …
