Gróa Sigurðardóttir fæddist í Mýrasýslu 15. mars, 1884. Dáin í Lundar í Manitoba 16. ágúst, 1964. Ógift og barnlaus. Gróa flutti vestur til Manitoba árið 1887 með foreldrum sínum, Sigurði Sigurðssyni og Bergþóru Bergþórsdóttur. Þau bjuggu fyrst í Mikley þar sem Gróa ólst upp en fluttu í Lundarbyggð árið 1903.
Ragnheiður Sigurðardóttir
Ragnheiður Sigurðardóttir fæddist árið 1885 í Mýrasýslu. Dáin í Lundarbyggð 1. nóvember, 1936. Ógift og barnlaus. Ragnheiður var dóttir Sigurðar Sigurðssonar og Bergþóru Bergþórsdóttur sem vestur fóru árið 1887 og settust að á Mikley. Fluttu þaðan í Lundarbyggð 1903. Ragnheiður ólst upp í Mikley og fór með foreldrum sínum til Otto í Lundarbyggð. Þar veiktist hún alvarlega árið 1922 og …
Dýrfinna Sigurðardóttir
Dýrfinna Sigurðardóttir fæddist í Mýrasýslu árið 1840. Dáin í Lundarbyggð 29. janúar, 1919. Maki: Ingimundur Pálsson d. á Íslandi. Börn: Guðfinna Þóra Þórðardóttir f. 1862, fór ekki vestur. Dýrfinna fór vestur árið 1887 með húsbændum sínum, Sigurði Sigurðssyni og Bergþóru Bergþórsdóttur. Fyrri maður hennar, Þórður Guðmundsson í Ánabrekku var barnsfaðir Dýrfinnu. Dýrfinna bjó hjá þeim í Lundarbyggð alla tíð.
